Ljósanótt er hátíð, sem árlega er haldin í Reykjanesbæ fyrstu helgi septembermánaðar. Hátíðin er kennd við ljós þau sem notuð eru til að lýsa upp Keflavíkurberg, sem er sá hluti Hólmsbergs, sem snýr að víkinni, Keflavík.
No licensed photograph yet
Four in five rooms open without one. Add a photograph with a declared licence and your credit sits under it, permanently.
Ljósanótt er hátíð, sem árlega er haldin í Reykjanesbæ fyrstu helgi septembermánaðar. Hátíðin er kennd við ljós þau sem notuð eru til að lýsa upp Keflavíkurberg, sem er sá hluti Hólmsbergs, sem snýr að víkinni, Keflavík. Hátíðin var fyrst haldin haustið 2000.
Haldnar eru sýningar af ýmsu tagi, tónleikar, sýningar og margs konar samkomur. Verslanir hafa ýmiss konar tilboð og margt er sér til gamans gert. Hápunktur hátíðarinnar er á laugardagskvöldinu, en þá er samkoma á Myllubakka, þar sem þekktar hljómsveitir skemmta á meðan dimmir. Þegar myrkur er skollið á eru ljósin á Berginu kveikt og síðan er flugeldasýning. Bergið blasir við frá Myllubakka og sjá áhorfendur því vel þegar ljósin eru kveikt.
Frumkvöðull Ljósanætur var Steinþór Jónsson, bæjarstjórnarmaður og hótelstjóri á Hótel Keflavík. Haldin er samkeppni um lag Ljósanætur og er lagið flutt á hátíðinni hverju sinni.
The text above is adapted from the Wikipedia article “Ljósanótt”, available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 licence.
Ljósanótt is recorded in open cultural data. The structured record cited below does not describe the practice, and this entry has not yet been reviewed by a person familiar with the tradition. 1